Alfa Framtak hefur lokið fjármögnun á rúmlega 22 milljarða króna framtakssjóði. Sjóðurinn heitir AF3 og er þriðji framtakssjóðurinn í rekstri félagsins.
AF3 er stærsti sjóður Alfa Framtaks til þessa, en um er að ræða fyrstu lokun og því líklegt að sjóðurinn muni stækka enn frekar á árinu, að því er kemur fram í tilkynningu.
Talsverð breidd er í fjárfestahópnum en auk íslenskra stofnana- og fagfjárfesta er Evrópski fjárfestingarsjóðurinn (EIF) kjölfestufjárfestir í sjóðnum. Þetta er fyrsta fjárfesting EIF í íslenskum framtakssjóði.
Ásamt EIF er Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) að fjárfesta í AF3. Fjárfesting EIF og EIB hljóðar upp á um 4,4 milljarða króna.
Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða og hefur langa reynslu af fjárfestingum í óskráðum félögum. Nú er félagið með þrjá sjóði í rekstri; AF1, AF2 og AF3. Stór hluti þeirra fjárfesta sem koma að þriðja sjóðnum, AF3, hafa verið fjárfestar í fyrri sjóðunum tveimur.
Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtaks, segir það mikla viðurkenningu að fá EIF í hluthafahópinn.
„Við erum einstaklega þakklát fyrir að svo stór hópur fjárfesta skuli sýna okkur þetta traust. Aðkoma EIF brýtur blað í okkar rekstrarsögu, en sennilega er um að ræða fyrstu erlendu fjárfestinguna í íslenskum framtakssjóði. Þetta sýnir trú þeirra á íslensku atvinnulífi sem er virkilega jákvætt og eykur samkeppnishæfni landsins til lengri tíma.“
Framtaksfjárfestingar á tímamótum
Í tilkynningu segir að markmið Alfa Framtaks sé að fjárfesta í fjölbreyttum fyrirtækjum, styðja við vöxt og að leiða umbreytingar í starfsemi þeirra. Að sögn Gunnars Páls sé þessu markmiði best náð með því að styðja framúrskarandi fólk til frekari árangurs.
„Verkefnin sem við höfum komið að eru mörg hver mjög ólík, en samnefnarinn er yfirleitt sá að við vinnum með öflugu fólki með stórar hugmyndir. Okkar hlutverk er að styðja þau í að raungera hugmyndir sínar og gera góð fyrirtæki betri. Þetta er okkar leið til þess að hafa jákvæð áhrif á íslenskt atvinnulíf.“

Alfa Framtak hefur komið að ýmsum verkefnum, en meðal þeirra stærstu eru kaup Travel Connect á Iceland Travel, yfirtakan á Origo og kaupin á ráðandi hlut í Lyf og heilsu. Að mati Gunnars Páls hefur módelið sannað sig og telur hann framtaksfjárfestingar vera á tímamótum.
„Síðastliðinn áratug hefur umhverfið í fjárfestingum í óskráðum fyrirtækjum tekið stakkaskiptum. Mikill uppgangur hefur verið hjá íslenskum vísifjárfestum, nýir framtakssjóðir hafa rutt sér til rúms og erlendir fjárfestar eru farnir að sýna fjárfestingum hérlendis meiri áhuga.
Ég tel okkur vera á ákveðnum tímamótum, framtakssjóðir eru búnir að sanna sig og nú er kominn tími til þess að taka næstu skref. Með stærri sjóðum getum við leikið stærra hlutverk og haft mótandi áhrif. Þannig getum við stutt betur við vaxtarfyrirtæki og innlend rekstrarfélög og hjálpað íslenskum útflutningsgreinum að hraða alþjóðlegri sókn.“
Eins og áður segir er Alfa Framtak nú með þrjá sjóði í sínum rekstri.
- AF1 er 7 milljarðar króna að stærð og hefur fjárfest í sex verkefnum; Borgarplasti, Motus, Málmsteypu Þorgríms Jónssonar, INVIT, Nox Health og Travel Connect.
- AF2 er 15 milljarða króna að stærð og er nú fullfjárfestur í sex verkefnum en þau eru Thor Ice Chilling Solutions, Origo/Skyggnir, Reykjafell, Knox hotels, Tixly og Lyf og heilsa.
- Fjárfestingarstefna AF3 er sambærileg og í fyrri sjóðum. Stærri sjóður opnar þó dyrnar að enn stærri tækifærum.