Dalsnes ehf., móðurfélag Innness einnar stærstu matvöruheildsölu landsins, hefur gengið frá sölu á 2.436 fermetra atvinnuhúsnæði að Bæjarflöt 2 í Grafarvogi til félagsins Malarhús ehf. Kaupverð húsnæðisins nam 980 milljónum króna en árið 2021 var lager og dreifing ferskvöru hjá Innnes flutt í nýjar höfuðstöðvar félagsins að Korngörðum 3. Ólafur Björnsson er eigandi Dalsness.

Malarhús er í eigu Karls Hákonar Karlssonar, Valdimars Þorsteinssonar og Ágústs Páls Sumarliðasonar. Þeir tveir fyrrnefndu eiga 41% hlut en sá síðastnefndi 18%. Þeir eru einnig þrír stærstu eigendur blikksmiðjunnar Blikksmiðsins hf. Karl er framkvæmdastjóri Blikksmiðsins en hann á jafnframt 35% hlut í fyrirtækinu. Valdimar, sem er verkefnastjóri hjá fyrirtækinu, á jafn stóran hlut. Þá á Ágúst, sem er þjónustustjóri Blikksmiðsins, 15% hlut.

Rekstur Blikksmiðsins hefur gengið með miklum ágætum undanfarin ár, þá sérstaklega árin 2022 og 2023. Árið 2023, sem er nýjasti ársreikningur sem hægt er að nálgast hjá fyrirtækjaskrá Skattsins, hagnaðist fyrirtækið um 240 milljónir og rúmlega tvöfaldaði hagnaðinn frá fyrra ári. Tekjur blikksmiðjunnar námu rúmlega 1,7 milljörðum árið 2023 og jukust um 16% frá fyrra ári. Framlegð nam rúmlega 1,2 milljörðum og jókst um nærri tvö hundruð milljónir á milla ára. Fjöldi ársverka voru 51,4 árið 2023, samanborið við 49,7 árið 2022.

Eignir Blikksmiðsins námu 883 milljónum í lok árs 2023 og eigið fé 577 milljónum. Stjórn félagsins lagði til að 80 milljónir yrðu greiddar út til hluthafa árið 2024.

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.