Fimmtudaginn 7. september fór fram opnunarviðburður FKA Framtíðar, sem er deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), og mættu yfir 100 konur á viðburðinn.

© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Viðburðurinn var tengslakvöld þar sem félagskonur voru hvattar til að mæta með vinkonu með sér til að leyfa þeim að kynnast starfi félagsins.

© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Aðaldagskrárliður kvöldsins var síðan fyrirlestur frá Röggu Nagla, sálfræðingi og heilsu-áhrifavaldi, þar sem hún fór yfir hvernig við setjum okkur mörk.

© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Viðburðurinn fór fram í húsakynnum Sýn að Suðurlandsbraut. Þar tóku til máls þær Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri, Kristín Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri, Kristjana Brynjólfsdóttir, þróunarstjóri sjónvarpslausna, og Eva Georgs, framleiðslustjóri og sögðu frá leik og starfi og nýjungum hjá Sýn.

© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Á þessu starfsári er áhersla lögð á að styrkja konur á öllum sviðum og þema vetrarins er „Sterkari þú”. Allir viðburðir starfsársins munu vinna með þemað, en stefnt er að fjölda fyrirlesara, námskeiða og fleiru skemmtilegu tengdu efninu.