Nova hefur eignast 20% hlut í Dineout og tekur sæti í stjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu. Fyrirtækin munu vinna saman að vöruþróun og nýjum lausnum. Þá hefur Nova kost á að auka við hlut sinn á næstu árum.
Inga Tinna Sigurðardóttir, stofnandi og forstjóri Dineout, og Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, undirrituðu samning um kaupin í dag en samhliða var undirritaður samningur um fjármögnun til þróunar á nýjum lausnum í strategísku samstarfi við Nova.
Í tilkynningu segir að markmið kaupa Nova sé að styrkja enn frekar „FyrirÞig“ í Nova-appinu sem sé stærsti vildarklúbbur landsins. Kaupin feli í sér mikil tækifæri til að auka vöruframboð til lítilla og meðalstórra fyrirtækja en einnig verði unnið að vöruþróun sem byggi á núverandi lausnum bæði Dineout og Nova, ásamt þróun á nýjum vörum.
Ör vöruþróun og vöxtur Dineout síðustu ára
Dineout var stofnað árið 2017 með það markmið að þróa borðabókunarkerfi fyrir íslenska veitingastaði. Síðan þá hefur fyrirtækið hannað 16 hugbúnaðarlausnir, þar á meðal kassakerfi, matarpöntunarkerfi, rafræn gjafabréf, viðburðakerfi og sjálfsafgreiðslulausnir, sem saman mynda stærsta markaðstorg landsins fyrir veitingaupplifanir.
Nýjasta vara sem Dineout hefur sett á markað er sinna.is sem er nýtt tímabókunarkerfi fyrir þjónustugeirann sem tengir viðskiptavini og þjónustufyrirtæki á borð við snyrtistofur, hárgreiðslustofur og einkaþjálfara. Í dag nýta yfir 600 fyrirtæki sér lausnir Dineout í daglegum rekstri.

Fjárfestingin liður í því að efla fríðindaklúbbinn og auka ánægju viðskiptavina
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, segir viðskiptin mikilvægan þátt í að styrkja enn frekar sambandið við viðskiptavini.
„Við finnum hvað aðdráttaraflið í Nova-appinu er mikið, þetta er stærsti vildarklúbbur landsins, og viðskiptavinir okkar kunna að meta það þegar daglega lífið, skemmtunin og þjónustan sem fólk er að nýta sér verður partur af Nova-upplifuninni.
Við horfum til vegferðar þar sem við getum nýtt sameiginleg tækifæri fyrir viðskiptavini, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, til þess að einfalda fólki lífið, spara því peninga, en líka hvetja það til að skemmta sér og njóta lífsins saman. Við viljum jafnframt einfalda fólki það að nýta allan ávinninginn sem fylgir því að vera viðskiptavinur Nova til þess að styrkja viðskiptavinasambandið enn frekar. Ég tel að kaupin og samstarfið muni styrkja þá vegferð.“
„Við hlökkum ekki síður til að þróa nýjar vörur og lausnir með frábæru teymi Dineout og taka dansinn saman. Þau hafa á undanförnum árum unnið ýmsar liprar og aðgengilegar lausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Við sjáum mikil tækifæri þar fyrir viðskiptavini okkar á fyrirtækjamarkaði þegar fram líða stundir.“ bætir Margrét við.
Aukinn kraftur með nýjum fjárfestum
„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá Dineout að fá Nova inn sem fjárfesti. Fjárfestingin og samstarfið markar nýtt og spennandi skref í vexti og þróun Dineout,“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout.
Inga Tinna segir í tilkynningu að Dineout eigi margt sameiginlegt með Nova. Bæði félögin hafi skorað á markaðinn og þróað vörur fyrir framtíðina með góðum árangri. Því sé frábært að fá liðsauka frá Nova í stjórn Dineout.
„Við teljum að lausnirnar okkar falli mjög vel að vöruframboðinu í Nova-appinu og munu sömuleiðis nýtast víðar í þjónustu þeirra. Að sama skapi mun sýnileiki viðskiptavina Dineout aukast. Við hlökkum til að auka vöruframboðið enn frekar og kynna nýjar lausnir til leiks í samstarfi við Nova,” bætir Inga Tinna við.