Besta deild karla hófst um þar síðustu helgi og hafa tvær umferðir verið leiknar til þessa. Þá hófst Besta deild kvenna fyrr í vikunni.
Eyjamenn seldu ársmiða á alla heimaleiki ÍBV, bæði karla- og kvennamegin, á 18 þúsund krónur á síðasta tímabili þegar liðin léku í Lengjudeildinni. Félagið á eftir að hefja sölu á árskortum vegna komandi tímabils, en framkvæmdir hafa staðið yfir á Hásteinsvelli, þar sem á að setja á gervigras.
Áætlað er að hægt verði að leika á vellinum í maí. ÍBV mun leika heimaleiki sína á Þórsvelli þar til Hásteinsvöllur verður klár. Fyrsti heimaleikur karlaliðs ÍBV verður spilaður á sumardeginum fyrsta, þann 24. apríl nk. Fyrsti heimaleikur kvennaliðs ÍBV, sem leikur í Lengjudeildinni, verður spilaður 8. maí.
Fyrir utan FH, sem býður áhangendum sínum upp á að kaupa stakt árskort á annaðhvort karla- eða kvennaleiki, bjóða öll lið sem leika í Bestu deild karla upp á árskort sem innihalda leiki hjá bæði karla- og kvennaliðum félagsins. Til einföldunar berum við saman kostnað þess að kaupa árskort á alla heimaleiki hjá bæði karla- og kvennaliðum félaganna.
Þá berum við jafnframt saman verð á árskortum fyrir fullorðna. Allur gangur er á því hvar skilin á milli ungmenna og fullorðinna liggja hjá liðunum, en heilt yfir eru þau á bilinu 23-26 ára.
Dýrustu árskortin hjá Víkingum og Blikum
Fyrir utan ÍBV er ódýrasta árskort fyrir fullorðna hjá Skagamönnum, á 22 þúsund krónur. Á hinum endanum kostar árskort hjá Víkingi tæpar 30 þúsund krónur og hjá Breiðabliki 28 þúsund krónur, en þessi tvö lið hafa náð hvað bestum árangri karlamegin síðastliðin tímabil.
Helmingur liða sem leika í Bestu deild karla selja ódýrasta árskortið á 25 þúsund krónur. FH og Fram selja á þúsund krónum lægra, á 24 þúsund krónur.
Fast sæti í stúku, rútuferðir og fundir með þjálfurum
Félögin hafa á undanförnum árum lagt talsvert púður í það að bjóða upp á dýrari árskort sem innihalda ýmis fríðindi fyrir þá sem vilja styðja félögin enn frekar í formi fjárframlaga. Allur gangur er á verðlagningu og þeim fríðindum sem fylgja kortunum. Flestum þeirra fylgir þó frítt kaffi auk veitinga og ýmiss konar svalandi drykkja í kringum leiki.
KR-ingar geta t.a.m. keypt dýrara árskort sem inniheldur bjór á Rauða ljóninu fyrir alla útileiki og far með rútu á sömu leiki svo lengi sem þeir eru spilaðir á Reykjavíkursvæðinu.
Dýrasta árskort Blika, sem er verðlagt á 145 þúsund krónur, veitir viðkomandi fast sæti í stúkunni á öllum heimaleikjum.
Dýrustu árskortin eru hjá Stjörnunni, Fram og Val, en þau fara á 150 þúsund krónur. Hjá Fram fylgir kortinu m.a. fundir með þjálfurum fyrir leiki. Hjá Val fylgir m.a. fast sæti í stúkunni, líkt og í tilfelli dýrasta árskorts Blika, en einnig miði á alla deildarleiki hjá handbolta- og körfuboltaliðum Vals og forgangur að miðum í úrslitakeppni í greinunum tveimur.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér og blaðið hér.