Evrópski þróunarbankinn (CEB) hefur samþykkt að veita Orkuveitu Reykjavíkur 75 milljóna evra lán.
Samkvæmt Kauphallartilkynningu OR er lánið veitt til að byggja upp veitukerfi og efla viðnám þeirra gegn loftslagsvá og náttúruhamförum.
Evrópski þróunarbankinn (CEB) hefur samþykkt að veita Orkuveitu Reykjavíkur 75 milljóna evra lán.
Samkvæmt Kauphallartilkynningu OR er lánið veitt til að byggja upp veitukerfi og efla viðnám þeirra gegn loftslagsvá og náttúruhamförum.
„Fjármagnið, sem svarar til meira en 11 milljarða íslenskra króna, nýtist til uppbyggingar rafveitna, hitaveitna og vatnsveitna. Mikil fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur kallað á uppbyggingu nýs húsnæðis sem tengist kerfum Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitunnar,“ segir í Kauphallartilkynningu.
Samhliða því er unnið að öflun aukins forða fyrir hitaveituna og fjárfesta þarf í rafveitunni til að mæta orkuskiptum.
Samkvæmt OR þurfa allar veiturnar að eflast vegna afleiðinga loftslagsbreytinga á borð við hækkandi sjávarstöðu, aukna ákefð úrkomu og óvissar breytingar í veðurfari.
OR segir að þróunarbankinn hafi tilkynnt um það sérstaklega við lánveitinguna að veituþjónustan „sé á hagstæðu verði og hafi því jöfnunaráhrif í samfélaginu.“
„Orkuveitan er að vaxa og eflast. Veitur vinna eftir metnaðarfullum áætlunum um eflingu veitukerfanna, sem eru grunnstoð í sjálfbærni okkar samfélags. Það er gott að Orkuveitan nýtur trausts til fjölbreyttrar og hagstæðrar fjármögnunar á þessum nauðsynlegu verkefnum. Nýleg dæmi um uppbyggingu og eflingu veitukerfanna er lagning og tenging nýrrar Suðuræðar fyrir hitaveituna á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu og bygging nýrrar aðveitustöðvar rafveitu Veitna til að hægt sé meðal annars að hlaða skemmtiferðaskip í Sundahöfn,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.