Mexíkóski pesóinn hefur veikst um 3,3% gagnvart Bandaríkjadal í morgun eftir að Claudia Sheinbaum bar sigur úr býtum í forsetakosningunum í Mexíkó í gærkvöldi.
Sheinbaum varð þar með fyrsta konan til að gegna embætti forseta Mexíkó en hún var borgarstjóri Mexíkóborgar á árunum 2018 til 2023.
Sheinbaum hlaut 60% atkvæða og hafði betur gegn kaupsýslukonunni Xóchitl Gálvez sem fékk um 30% atkvæða.
Gengi pesósins hefur ekki verið lægra síðan í nóvember í fyrra en einn Bandaríkjadalur kaupir nú 17,55 pesóa.
„Ástæðan er einföld,“ segir Simon Quijano-Evans aðalhagfræðingur Gemcorp Capital Management í samtali við The Wall Street Journal. „Kosninganiðurstaðan sýnir að það er ekki sterk stjórnarandstaða í Mexíkó sem veitir fjárfestum hugarangri.“
Að mati Quijano-Evans er afar mikilvægt í lýðræðissamfélagi að það sé sterk stjórnarandstaða vinstriflokkur Sheimbaum, Morena, er einnig með meirihluta á mexíkóska þinginu.
Samkvæmt WSJ gerir þetta Sheimbaum kleift að betra stjórnarskrá landsins án þess að þurfa sækja stuðning frá öðrum flokkum landsins sem vekur upp hræðslu meðal fjárfesta í dag.