Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Fjárfestahópurinn sem tók þátt taldi um 280 aðila sem er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í einstöku útboði á erlendum skuldabréfum ríkissjóðs, að því er segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

Fjármálaráðuneytið segir að fjárfestar hafi sýnt útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 7 milljörðum evra. Það samsvarar rúmlega nífaldri fjárhæð útgáfunnar, sem er án fordæmis í útboði ríkissjóðs á erlendum skuldabréfum.

Fagfjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum, bönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Norður-Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum JP Morgan, BNP Paribas, DZ bank og Nomura.

„Það er einkar ánægjulegt að sjá það mikla traust sem fyrstu útgáfa grænna skuldabréfa fær frá fjölbreyttum hópi alþjóðlegra fjárfesta. Þetta er til marks um trúverðugleika stefnu okkar í ríkisfjármálum og umhverfismálum, sem undirstrikar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum tekist á hendur. Þessi mikli áhugi er ekki síður til marks um það traust sem fjárfestar bera til Íslands og ímynd landsins sem fyrirmyndar á sviði umhverfismála,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.

„Útgáfan nú er í samræmi við þá stefnu sem við höfum sett fram í lánamálum og er hluti af aðgerðaráætlun í loftslagsmálum. Andvirði útgáfunnar verður nýtt til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna umhverfismála á næstu árum. Fjármögnunin styrkir getu okkar til að mæta enn frekar þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Rífleg eftirspurn og kjör ríkissjóðs bera einnig með sér traust á stjórn efnahags- og ríkisfjármála.“