Sala á Teslu bílum í Þýskalandi og Bretlandi í apríl dróst verulega saman milli ára samkvæmt tölum sem birtar voru í dag.
Salan í Þýskalandi lækkaði um 46% milli ára samkvæmt tölum frá tölum þýska ríkinu. Sala á Teslu bifreiðum í Bretlandi dróst saman um 62% samkvæmt tölum SMMT, samtaka bílaframleiðenda. Sala á öðrum evrópskum mörkuðum hélt einnig áfram að dragast saman.
Í frétt MarketWatch segir að áframhaldandi örðugleikar Teslu í Evrópu fylgja í kjölfar þess að rafbílaframleiðandinn gaf út nýja útgáfu af jepplingnum. Enn líklegra sé því að rekja megi erfiðleikaa Teslu til pólitískra afskipta forstjórans Elon Musk, náins bandamanns Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Musk hefur einnig sýnt þýska AfD flokknum stuðning.
Áréttað er að Bandaríkin og Kína séu lykilmarkaðir Tesla. Um þrír fjórðu tekna Teslu á fyrsta ársfjórðungi má rekja til þessara tveggja markaða.