Kínversku fyrirtækin Shein og Temu hækkuðu verð sín í dag á mörgum vörum vegna tollahækkana en 120% tollar Donald Trumps á Kína munu taka gildi í næstu viku. Þetta kemur fram á vef CNN.

Fyrirtækin hafa þegar upplýst viðskiptavini sína um hækkanirnar en margir bandarískir viðskiptavinir hafa þegar tekið eftir breytingunum.

Bandaríkjamenn sem versla við Shein og Temu hafa hingað til komist hjá því að greiða tolla vegna undanþágu sem sett var á vörusendingar sem kosta minna en 800 dali, eða um 102 þúsund krónur. Sú undanþága verður fjarlægð 2. maí nk. samkvæmt tilskipun frá Trump.

Nokkrar vörur hafa þá verið teknar fyrir en sem dæmi hækkaði verð á garðstólasetti frá 61 dal upp í 70 dali. Sundföt sem kostuðu 4,39 dali á Shein í gær kosta nú 8,39 dali en það samsvarar hækkun upp á 91%.

Báðar vefsíðurnar hafa hvatt viðskiptavini í Bandaríkjunum til að klára kaup sín fyrir helgi til að forðast það að greiða hærra verð.