Icelandair hefur sameinað leiðakerfis- og sölusvið annars vegar og þjónustu- og markaðssvið hins vegar í eitt svið sem fer með sölu, þjónustu, markaðsmál og stjórnun leiðakerfis félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Tómas Ingason verður framkvæmdastjóri nýs sameinaðs sviðs og Sylvía Kristín Ólafsdóttir færist úr hlutverki framkvæmdastjóra þjónustu og markaðsmála og tekur við af Jens Bjarnasyni sem framkvæmdastjóri rekstrar. Jens mun starfa áfram hjá félaginu sem ráðgjafi í stefnumótandi verkefnum og heyra beint undir forstjóra.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Við sjáum mikil tækifæri á öllum mörkuðum okkar næstu misseri og þessi einföldun á skipulagi er liður í því að bæta rekstrarárangur félagsins á sama tíma og við vinnum að metnaðarfullum áætlunum okkar. Með sameinuðu tekju-, þjónustu- og markaðssviði munum við styrkja áherslu okkar enn frekar á upplifun viðskiptavina í allri okkar starfsemi ásamt því að halda áfram að stuðla að sterkri tekjumyndun. Tómas mun taka við sameinuðu sviði en hann hefur leitt tekjusvið félagsins, uppbyggingu leiðakerfisins og viðskiptaþróun á undanförnum árum. Sylvía mun taka við rekstrarsviði félagsins og nýtir þar breiðan bakgrunn úr flugrekstri, stjórnun leiðakerfis og við uppbyggingu þjónustuupplifunar sem hún hefur leitt síðustu 18 mánuði. Jens býr yfir áratuga reynslu úr flugiðnaði og hjá Icelandair og mun gegna mikilvægu hlutverki í stefnumótandi verkefnum, meðal annars við að tryggja innleiðingu Airbus flugvéla inn í flota Icelandair á næstu árum. Jens mun vinna með framkvæmdastjóra rekstrar á næstu mánuðum.“
Um Tómas:
Tómas hefur verið framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu (e. Chief Revenue Officer) síðan 2021 og var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og stafrænnar umbreytingar á árunum 2019 til 2021. Hann var framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs WOW air á árinu 2018 og forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka á árunum 2016 til 2018. Þá var hann framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá WOW air á árinu 2014. Fyrir þann tíma var hann ráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn og starfaði sem forstöðumaður tekjustýringar og verðlagningar hjá Icelandair til margra ára. Tómas er með MBA gráðu og MSc. gráðu í verkfræði með áherslu á aðfangakeðjur og flugfélög frá MIT Sloan School of Management í Boston sem og BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Um Sylvíu:
Sylvía hefur verið framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála frá 2022. Fyrir það starfaði hún sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo. Sylvía kom fyrst til starfa hjá Icelandair árið 2018 sem forstöðumaður stuðningsdeildar flugrekstrar og síðar sem forstöðumaður leiðakerfis félagsins. Hún starfaði hjá Landsvirkjun frá árinu 2015 þar sem hún var meðal annars deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði. Áður starfaði hún hjá höfuðstöðvum Amazon í Evrópu um fimm ára skeið, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind, markaðsmál og vöruþróun fyrir vefbækur. Sylvía er með M.Sc. próf í operational research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía er stjórnarformaður Íslandssjóða.