Frá og með 1. nóvember nk. mun Skyggnir eignarhaldsfélag taka til starfa og þar með flyst starfsemi Origo sem snýr að rekstrarþjónustu, innviðum og hugbúnaði í aðskilið dótturfélag, Origo ehf.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu en þar segir að tilgangur Origo verði sá sami og hingað til, „að skapa betri tækni sem bætir lífið og hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að ná betri árangri með tækninni.“
Forstjóri Origo segir að breytingin muni skerpa á hlutverki Origo og efla þjónustu gagnvart viðskiptavinum.

Vörumerki Origo hefur síðan 2018 gegnt tveimur hlutverkum: Annars vegar sem móðurfélag fjölda dótturfélaga og sem rekstrarfélag með fjölbreytt framboð á sviði upplýsingatækni.
Tilgangurinn með skipulagsbreytingunni er sagður vera til að skilja að starfsemi eignarhaldsfélags og rekstrar.
„Annars vegar er breytingin gerð til að skapa meiri fókus á vöruþróun og afhendingu lausna og þjónustu hjá Origo. Hins vegar, til að skilgreina betur hlutverk eignarhaldsfélagsins gagnvart rekstrarfélögum sínum, samstarfsaðilum og fjárfestum,“ segir í tilkynningu Origo.
„Þessi breyting eru tímamót hjá Origo og öllum rekstrarfélögum í eigu Skyggnis. Með nýju skipulagi náum við að skerpa betur á hlutverki Origo og hafa rekstur og þjónustu þar í forgrunni. Við einsetjum okkur að vera traustur samstarfsaðili fyrirtækja og stofnana og að skapa framúrskarandi tæknilausnir sem hjálpa viðskiptavinum okkar að ná árangri,“ segir Ari Daníelsson, forstjóri Origo.
„Skyggnir fer með eignarhluti í 14 rekstrarfélögum á sviði upplýsingatækni og hefur það hlutverk að koma auga á tækifæri og styðja fyrirtæki í eignasafni sínu til árangurs. Sjálfstæð rekstrarfélög í eigu Skyggnis, þar sem Origo ehf. er stærst, einbeita sér þannig að viðskiptavinum sínum, vörum og rekstri,“ segir Ari að lokum.
Ítarlegt viðtal við Ara um breytingarnar má finna í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta nálgast blaðið og viðtalið í heild klukkan 19:30 í kvöld hér.