Á dögunum greindi Icelandair frá samstarfssamningi við indverska flugfélagið Air India um sammerkt flug. Icelandair hefur á síðustu misserum m.a. undirritað samstarfssamninga við Air India, Southwest Airlines, Emirates, Turkish Airlines, ítalska flugfélagið ITA Airways og portúgalska flugfélagið TAP. Icelandair er einnig með samstarfssamninga við JetBlue, Air Baltic, Air Greenland, Alaska Airlines, Atlantic Airlines, Finnair og SAS.

„Með samstarfssamningunum erum við að útvíkka leiðakerfi félagsins og um leið styrkja tekjugrunninn,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Þó að félagið hafi verið duglegt að fjölga samstarfssamningu undanfarið segir forstjórinn þó ekki þar með sagt að Icelandair sé til í samstarf með hvaða flugfélagi sem er.

„Við veljum samstarfsaðila mjög gaumgæfilega þannig að þeir falli vel að okkar leiðakerfi og opni á ný tækifæri. Með þessu útvíkkum við leiðakerfi Icelandair með tengingu við leiðakerfi samstarfsaðilanna, komumst inn í þeirra sölu- og dreifikerfi og þau inn í okkar sömuleiðis. Um leið efla þessir samningar þjónustu við viðskiptavini. Til að mynda tengist vildarkerfi okkar í sumum tilfellum við vildarkerfi samstarfsaðilanna, með tilheyrandi ávinningi fyrir viðskiptavini. Ávinningur beggja samstarfsaðila sem og viðskiptavina er því verulegur.“

Hann bendir á að samstarfssamningarnir hjálpi félaginu ekki einungis að grípa ný tækifæri heldur einnig að bregðast við breyttum ytri aðstæðum hverju sinni. „Til dæmis ef að einhver ákveðinn markaður er að veikjast þá höfum við miklu fleiri möguleika til þess að vinna á móti því, með stærra og öflugra leiðakerfi.“

Icelandair hefur áður greint frá því að um tíu prósent af tekjum félagsins komi frá samstarfi. Til að setja það í samhengi námu tekjur félagsins um 216 milljörðum króna á síðasta ári og skilaði samstarf því tæplega 22 milljörðum. Aðspurður kveðst Bogi reikna með að hlutfallið muni aukast á næstu árum.

„Við höfum verið að fjölga samstarfsaðilum og þétta samstarfið við þá sem við eigum þegar í samstarfi við. Það má því gera ráð fyrir að þetta hlutfall aukist.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið viðtalið við Boga í heild hér.