Rekstrartekjur Ísorku, sem selur og rekur hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbifreiðar, drógust saman um 44 milljónir á milli ára og námu 651 milljón í fyrra.
Eftir 15 milljón króna hagnað árið 2022 skilaði 6 milljón króna tapi í fyrra. Eigið fé í árslok var 40 milljónir sem er lækkun úr 134 milljónum króna.
Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa á árinu 2023 en Egg ehf., móðurfélag bílaumboðsins BL, á um 82,5% hlut. EGG er í jafnri eigu Ernu Gísladóttur og Jóns Þórs Gunnarssonar.

Ísorka var stofnuð af Sigurði Ástgeirssyni, framkvæmdastjóra félagsins, og Jóni Þór Frantzsyni, forstjóra Íslenska gámafélagsins.
Félagið hóf formlega starfsemi í árslok 2016 og var fyrst fyrirtækja á Íslandi til að hefja gjaldtöku fyrir hleðslu á hleðslustöðvum.
Sponsinn ehf., sem er í 100% eigu Sigurðar fer með 10% hlut í Ísorku en félagið seldi Eggi 16,2% hlut árið 2021.
Árið 2022 átti EGG ehf., um 89% hlut í Ísorku en í ársreikningi félagsins það ár var hluturinn metinn á 211 milljónir króna.