Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar (e. sound simulation), lauk nýverið ellefu milljón evra A-fjármögnunarlotu (series A) að fjárhæð 1,7 milljarðar króna með þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta.

„Fjármagnið verður nýtt til að ráða fleira starfsfólk, efla rannsóknar- og þróunarstarf, skala upp söluteymi og sækja á nýja markaði. Meðal viðskiptavina félagsins eru stærstu tæknifyrirtæki heims,“ segir í tilkynningu.

Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar (e. sound simulation), lauk nýverið ellefu milljón evra A-fjármögnunarlotu (series A) að fjárhæð 1,7 milljarðar króna með þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta.

„Fjármagnið verður nýtt til að ráða fleira starfsfólk, efla rannsóknar- og þróunarstarf, skala upp söluteymi og sækja á nýja markaði. Meðal viðskiptavina félagsins eru stærstu tæknifyrirtæki heims,“ segir í tilkynningu.

Nýsköpunarfyrirtækið sótti síðast 1,2 milljarða króna í fjármögnunarlotu á klakstigi (e. seed stage) árið 2022.

Evrópskur vísisjóður leiddi fjármögnunina

Fjármögnunarlotan var leidd af Kompas VC, sem er evrópskur vísisjóður sem sérhæfir sig í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja tengdum byggingar- og framleiðsluiðnaði.

Aðrir fjárfestar sem tóku þátt í þessari lotu voru Omega ehf., Frumtak Ventures sem leiddi síðustu fjármögnunarlotu Treble, Evrópska nýsköpunarráðið auk einkafjárfesta.

Jafnframt tóku Saint-Gobain og L-Acoustics, sem eru samstarfsfyrirtæki Treble, þátt í fjármögnuninni. Saint-Gobain er eitt stærsta fyrirtæki Evrópu, sem framleiðir vörur og lausnir fyrir byggingar- og bílaiðnaðinn, og L-Acoustics er stærsti hljóðkerfaframleiðandi heims.

Hermir hegðun hljóðs með áður óþekktri nákvæmni

Treble var stofnað árið 2020 af hljóðverkfræðingunum Dr. Finni Pind og Jesper Pedersen, ásamt Ingimari Andersen hugbúnaðarverkfræðingi og Gunnari Haukssyni sérfræðingi í viðskiptaþróun. Rætur Treble liggja aftur til margra ára rannsóknarstarfs í háskólaumhverfinu á árunum fyrir 2020.

Nýsköpunarfyrirtækið þróar hugbúnað sem hermir hegðun hljóðs með áður óþekktri nákvæmni og hraða. Lausnin gerir viðskiptavinum kleift að herma og hanna hljóð í hvers kyns þrívíddarmódelum og er því sérstaklega gagnleg við hönnun bygginga, bíla og tæknivara, að því er segir í tilkynningunni.

„Með slíkri hermun er hægt að meta hvernig ákveðin hönnun, hvort sem það er hönnun byggingar, bíls, heyrnartækis, sýndarveruleikagleraugna eða sjónvarps, svo dæmi séu tekin, komi til með að hljóma áður en framleiðsla hefst. Tækni Treble er einnig nýtt til þjálfunar gervigreindar, til dæmis þjálfun raddstýringa, snjallhátalara og talgreiningar.“

Starfshópur Treble Technologies.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Fyrsta og eina vara sinnar tegundar

Árið 2023 gaf Treble út sína fyrstu vöru, sem fyrirtækið segir að sé sú fyrsta og eina sinnar tegundar í heiminum sem býður upp á hljóðhermun í skýinu. Hljóðhermunartækni Treble er einkaleyfisvarin og er meira en 100 sinnum hraðari en fyrri hljóðhermunarlausnir.

Meðal viðskiptavina sem nýta tæknilausn Treble eru nokkur af stærstu fyrirtækjum heims á sviði tækni-, bygginga-, hljóð- og bifreiðaframleiðslu. Innan þeirra raða er m.a. stærsta verkfræðistofa heims, þrjú af fimm stærstu tæknifyrirtækjum í heimi og einn stærsti bifreiðaframleiðandi heims.

„Heimurinn gæti hljómað svo mun betur en hann gerir nú og það er gífurleg þörf á því að draga úr hávaðamengun. Markmið okkar hjá Treble er að bjóða upp á tólið sem gerir þessum mismunandi geirum – byggingum, bílum og tækni – kleift að hanna betri hljóðlausnir og draga úr hávaða. Það mun skila sér í bættri heilsu fólks, vellíðan og framleiðni. Lausnin okkar bætir líka upplifun fólks þegar það tengist öðrum í gegnum netið og stuðlar þannig að betri samskiptum og meiri tengingu milli fólks,“ segir Dr. Finnur Pind, stofnandi og framkvæmdastjóri Treble.

„Fjármögnunarlotan er stór áfangi fyrir Treble. Hún staðfestir stöðu okkar sem leiðandi nýsköpunarfyrirtæki í hljóðgeiranum, sýnir hvers megnugt Treble teymið er og gerir okkur kleift að halda ótrauð áfram. Við munum áfram vinna náið með samstarfsaðilum og viðskiptavinum okkar til að þróa framtíð hljóðs og skapa hljómbetri heim.“

„Fjárfesting okkar í Treble er í takt við þá stefnu okkar að stuðla að heilbrigðu og sjálfbæru umhverfi. Að okkar mati er Treble brautryðjandi þegar kemur að hljóðhönnun með sinni nýstárlegu tækni. Lausn þeirra gerir það að verkum að hægt er að vinna að frumgerðum og prófa vörur á mun betri máta en áður. Fyrirtækið er að sækja fram á feykilega stóran markað. Við hlökkum til að fylgjast með Treble, og því hæfileikaríka starfsfólki sem þar starfar, halda áfram að slá rétta tóninn,“ er haft eftir Sebastian Peck, meðeigandi hjá Kompas.