Bandaríski seðlabankinn er um þessar mundir að undirbúa vaxtalækkun en samkvæmt The Wall Street Journal stendur Jerome Powell seðlabankastjóri frammi fyrir erfiðri ákvörðun; hvort það eigi að lækka vexti duglega eða lítið í fyrstu atrennu.
Verðbólga á ársgrundvelli í Bandaríkjunum hefur hjaðnað verulega síðustu fimm mánuði og mældist einungis 2,5% í ágúst. Hagfræðingar vestanhafs sammælast um að vextir verði lækkaðir í næstu viku en ekki eru allir sammála um hlutfallið.
Meðlimir peningastefnunefndar seðlabankans hafa gefið í skyn að vextir verði lækkaðir yfir margra mánaða tímabil en stóra spurningin er hvort það verði byrjað á 25 punkta eða 50 punkta lækkun.

Powell gaf litlar vísbendingar um afstöðu sína í þessum efnum í ræðu sinni í Jackson Hole Wyoming á dögunum.
Um er að ræða ráðstefnu þar sem seðlabankastjórar koma saman en Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Íslands var meðal gesta.
Í ræðu sinni benti Powell því til kollega sinna að hafa augun á hættunum sem eru að myndast á vinnumarkaði áður en hann sagði að stærð og tímasetning vaxtalækkana yrði alltaf háð efnahagslegum gögnum hverju sinni.
Jon Faust, efnahagsráðgjafi Powell til margra ára, segir í samtali við WSJ að fjöldi vaxtalækkana á næstu mánuðum sé mikilvægari ákvörðun heldur en hvort fyrsta lækkunin verði 25 eða 50 punktar.
Hann starfaði með Powell í áraraðir en sagði starfi sínu lausu í vor. Hann segir að það verði mjótt á mununum hvort seðlabankastjórinn ákveði að lækka vexti um 25 eða 50 punkta.