Á síðustu fjórðungum hefur stærsti banki Bandaríkjanna, JPMorgan Chase, reynt að vara fjárfesta við því að bankinn væri að „of-þéna“ á hreinum vaxtatekjum sem munu dragast saman þegar vaxtalækkunarferli seðlabankans hefst.
Stjórnendur bankans hafa notað hugtakið „of-þéna“ eða „over- earning“ oftar en 30 sinnum í samtölum við fjárfesta og á ráðstefnum síðastliðið ár, samkvæmt eftirritum sem The Wall Street Journal greinir frá.
Verðbólga á ársgrundvelli hefur hjaðnað verulega síðustu mánuði vestanhafs og er gert ráð fyrir að vaxtalækkunarferli bandaríska seðlabankans hefjist í næstu viku.

Fjárfestatengslum JPMorgan hefur þó gengið erfiðlega að ná til fjárfesta um þennan yfirvofandi samdrátt, samkvæmt WSJ.
Af þeim sökum ákvað Daniel Pinto, framkvæmdastjóri rekstrar hjá JPMorgan, að hamra á þessari staðreynd á bankaráðstefnu Barclays á þriðjudaginn.
Pinto greindi fundargestum frá því að greiningaraðilar áætla að á næsta ári muni hreinar vaxtatekjur bankans dragast saman um 1,5 milljarða Bandaríkjadali, eða um 207 milljarða króna á gengi dagsins.
Pinto bætti við að hann persónulega telji að samdrátturinn verði meiri þar sem hann telur að vextir verði lægri en gert er ráð fyrir í spánni.
Pinto tókst að fanga athygli fjárfesta á ráðstefnunni og féll gengi bankans um 5% á þriðjudaginn.
Mun það vera ein mesta lækkun á gengi JPMorgan Chase á einum viðskiptadegi síðastliðin ár.
The Wall Street Journal segir að þó að hreinar vaxtatekjur JP Morgan muni vissulega dragast saman á næsta ári sé staða bankans enn mjög sterk og fjárfestar þurfi ekki að missa svefn yfir afkomunni næstu fjórðunga.
Þá má einnig áætla að fjárfestingastarfsemi bankans muni taka við þegar vextir lækka sem gæti mætt yfirvofandi samdrætti í hreinum vaxtatekjum til skamms tíma.
KeyCorp í kjörstöðu
Á sama tíma er ljóst að margir minni og meðalstórir bankar í Bandaríkjunum munu njóta góðs af lægri vöxtum.
Slíkir bankar hafa þurft að fjármagna sig á verri kjörum en stóru fjárfestingarbankarnir og munu þeir að öllum líkindum endurfjármagna sig á betri kjörum er vextir lækka.
Fjármögnunarkjör stóru fjárfestingarbankanna versnuðu ekki af einhverju viti með hækkandi vöxtum en samhliða því eru þeir að greiða afar lítið í innlánsvexti í samræmi við afkomu.
Þegar hreinar vaxtatekjur þeirra 160 banka sem eru skráðir á markað í Bandaríkjunum eru skoðaðar kemur í ljós að JPMorgan Chase er með afar stórt hlutfall af tekjunum.
Samkvæmt gögnum frá Visible Alpha er áætlað að um fimmtungur allra hreinna vaxtatekna séu hjá JPMorgan Chase og því muni vaxtalækkanirnar vera meiri áskorun fyrir bankann en aðra.
Samkvæmt greiningardeild Bank of New York Mellon áætlar bankinn að hreinar vaxtatekjur bankanna muni dragast saman um 6% til 7% á árinu.
Af minni og meðalstóru bönkunum er áætlað að KeyCorp muni njóta hvað mest góðs af lægri vöxtum en bankinn eru sagðir hafa losað sig við mikið af lánum á slæmum kjörum er vextir byrjuðu að hækka vestanhafs.
KeyCorp greindi frá því í vikunni að bankinn spáir því að hreinar vaxtatekjur verði um 20% hærri á næsta ári. Hlutabréfaverð KeyCorp hefur hækkað um 9% síðastliðinn mánuð.