Sumarið er tíminn til að ferðast, kanna nýja staði og safna minningum. En hvert á að fara þegar valmöguleikarnir eru endalausir? Við spurðum nokkra einstaklinga úr atvinnulífinu hvaða áfangastaðir standa upp úr hjá þeim – frá suðrænum ströndum til norrænnar fegurðar, frá hámenningu til afslappaðs strandlífs.

Hér er einn af uppáhalds stöðum Jóhanns G. Jóhannssonar.

Ef þig langar í sumarfrí sem býður upp á bæði afslöppun og spennandi menningu, þá ættirðu að skoða Gotland. Það segir að minnsta kosti Jóhann G. Jóhannsson, einn stofnenda og eigenda Aztiq, sem hefur nokkrum sinnum heimsótt þessa sjarmerandi sænsku eyju.

„Gotland er stórkostleg eyja rétt undan ströndum Svíþjóðar. Þar er að finna einstaka blöndu af sögulegum minjum, fallegri náttúru og líflegri listasenu,“ segir Jóhann.

Hægt er að komast til Gotlands bæði með ferju, sem tekur um þrjá tíma, eða með flugi sem tekur innan við klukkutíma. „Ef maður er í Svíþjóð er þetta mjög þægilegur áfangastaður – einfalt að komast þangað og vel þess virði,“ bætir hann við.

Gotland.

Höfuðborg eyjarinnar, Visby, er sögulegur gimsteinn sem er á heimsminjaskrá UNESCO. „Þar má finna fjölmörg skemmtileg hótel og spennandi veitingastaði, auk þess sem götur bæjarins eru umluktar miðaldamúr sem gefur honum einstakan sjarma.“

Og hvað er hægt að gera á Gotlandi? „Það er frábært að hjóla um eyjuna og njóta náttúrunnar, fara á fallegar strendur eða einfaldlega rölta um Visby og drekka í sig stemninguna. Síðan er auðvitað sagan alltumlykjandi – hér erum við að tala um stað sem tengist víkingum og miðöldum á djúpstæðan hátt.“

Gotland hefur lengi verið í miklum metum hjá Svíum og laðar að sér fjölda listamanna sem sækja innblástur í kyrrð og fegurð eyjarinnar. Jafnframt hafði hinn heimsþekkti kvikmyndagerðarmaður Ingmar Bergman sérstakt dálæti á Gotlandi og átti þar margar dýrmætar stundir.

„Ef þig langar í sumarfrí með fallegu umhverfi, ríkri sögu og fjölbreyttri menningu, þá er Gotland klárlega staðurinn,“ segir Jóhann að lokum.

Fjallað er um málið í nýju tímariti Frjálsrar verslunar. Hægt er að kaupa eintak hér en áskrifendur geta nálgast efni úr tímaritinu hér.