Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, var tekjuhæsti forstjóri ríkisfyrirtækja í fyrra samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Tekjur hans á mánuði námu að jafnaði rúmlega 4,2 milljónum króna á síðasta ári.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, kemur næstur á eftir Herði en tekjur hans á mánuði námu að jafnaði tæplega 3,7 milljónum króna árið 2023.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, fylgdi svo fast á hæla Sveinbjörns og var þriðji tekjuhæsti ríkisforstjóri landsins í fyrra, með tæplega 3,6 milljónir í tekjur að mánuði að jafnaði.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.