Þeir sem þekkja til þessara samninga hafa vitað um árabil að þessi afhending borgarstjóra á verðmætum til olíufélaganna orka tvímælis og full þörf hefur verið á því að samnmingarnir séu skoðaðir af blaðamönnum – að ekki sé talað um það hofmóðuga fólk sem kallar sig rannsóknarblaðamenn. Greinilegt er að þeir sem stýra fréttaumfjöllun RÚV eru ekki á þessari skoðun.
Furðu sætir að enginn fjölmiðill hafi notað þá staðreynd hver margir skrifuðu undir án þess að geta nafns sem tilefni til að ræða við Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Transparency International á Íslandi, um þöggunina í þjóðfélaginu. En hvað um það?