Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,7% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 28. janúar. Samfylkingin mældist með 15,9% fylgi, sem er tæplega hálfu prósentustigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun og fylgi Framsóknarflokksins jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 13,5%. Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt prósentustig, fylgi Pírata minnkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 42,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,5% í síðustu mælingu.

  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 10,4% og mældist 12,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,1% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,9% og mældist 5,4% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,1% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi annarra flokka mældist 5,2% samanlagt.