Á öðrum ársfjórðungi 2017 var 16,3 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Þá var halli á vöruskiptajöfnuði 45,8 milljarða króna en afgangur á þjónustujöfnuði 60,5 milljarða króna. Þá skiluðu frumþáttatekjur 6,8 milljarða króna afgangi en rekstrarframlög 5,1 milljarða króna halla.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2017 og stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.494 milljarða króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.556 milljarðar króna.

Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 62 milljarða króna eða sem nam 2,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og lækkaði um 142 milljarða króna eða sem nam 5,7% af VLF á milli ársfjórðunga.

Skuldir lækkuðu um 113 milljarða króna og erlendar eignir um 117 milljarða króna vegna fjármagnsviðskiptanna. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um sem nam 139 milljarða króna Munar þar mestu um verðlækkun á eignum sem falla undir beina fjárfestingu. Gengi krónunnar hækkaði á öðrum ársfjórðungi gagnvart helstu gjaldmiðlum um 4,8% miðað við gengisskráningarvog.