Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík fer nú af stað í sjöunda sinn í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups.
Hraðallinn hefur fest sig í sessi sem eftirsóttur vettvangur fyrir sprotafyrirtæki sem vilja þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og hraða vexti undir leiðsögn sérfræðinga.
Lögð er áhersla á að ná til öflugra teyma með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greinda, ætlaðar alþjóðamarkaði.
Umsóknum í hraðalinn fjölgaði um 45% frá síðasta ári, en alls bárust 270 umsóknir í ár. Umsóknir erlendis frá eru um helmingur umsókna.
Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðlinum sem hefst þann 11. júní næstkomandi. Fyrirtækin eru eftirfarandi:
- Anymaker - Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrívíddarhugbúnað ætlaðan börnum.
- Blockcycle - Kerfi sem nýtir Blockchain tæknina til að rekja feril umbúða frá afurð til endastöðvar.
- Ekki banka - Einföld og snjöll þjónusta, sem hjálpar fólki að gera meira úr peningunum sínum.
- Huginn.care - Skýjalausn, fyrir fyrirtæki og stofnanir, sem ætlað er að einfalda atvika- og dagbókaskráningar skjólstæðinga í umönnun.
- Koride - Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna ferðamenn á Íslandi.
- Leiguskjól - Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar lausnir fyrir leigumarkað.
- Melius - Hannar og framleiðir vélbúnað sem gerir snjallsímum kleift að fylgja því sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á símanum.
- Sea Data Center - Tæknilausn sem byggir á einstökum gagnagrunni og ætlað er að auka virði viðskipta meðal fyrirtækja í sjávarútvegi.
- Taktikal - Hugbúnaðarlausn sem gerir einstaklingum og lögaðilum mögulegt að stofna til viðskipta á örfáum mínútum með sjálfvirknivæðingu á ýmsum viðskiptaferlum.
- Unify Me - Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga öll innri samskipti á einum stað.
Teymin tíu munu njóta ráðgjafar og leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annara sérfræðinga yfir tíu vikna tímabil í þeim tilgangi að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar, koma vöru á markað og hraða vexti.
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavik var stofnaður árið 2012 í samstarfi Arion banka og Icelandic Startups.