Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech hefur undirritað alþjóðlegan sérleyfissamning við BiosanaPharma um samstarf í þróun og framleiðslu á AVT23 (áður kallað BP001) sem þróað er sem líftæknihliðstæðulyf við Xolair® (omalizumab) frá Novartis og Roche. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Lyfið er meðal annars notað til meðferðar við meðalalvarlegum til alvarlegum einkennum þráláts ofnæmisastma. Tekjur vegna sölu Xolair á heimsvísu árið 2020 voru 3,3 milljarðar dollara. AVT23 er framleitt með 3C-framleiðslutækni sem þróuð var af BiosanaPharma og er einkaleyfisvarin. Í tilkynningu segir að þetta vinnsluferli skili miklum afköstum við framleiðslu samhliða lágum kostnaði.

Samkvæmt skilmálum samningsins fær Alvotech einkarétt á markaðssetningu AVT23, sem þróað er sem líftæknihliðstæðulyf við Xolair. Samkvæmt samningnum fær BiosanaPharma staka fyrirframgreiðslu og eftir það stighækkandi hlutfall af sölu. Að auki munu BiosanaPharma og Alvotech vinna saman að frekari þróun AVT23, sem er um þessar mundir á síðari stigum þróunar. Biosana hefur lokið samanburðarrannsókn sem sýndi fram á að aðgengi, öryggi, þol og mótefnamyndun AVT23 eru sambærileg við Xolair.

Þann 7. desember 2021 tilkynntu Alvotech og Oaktree Acquisition Corp. II (NYSE: OACB.U, OACB, OACB WS), sérhæft yfirtökufélag sem styrkt var af hlutdeildarfélagi Oaktree Capital Management, L.P., að fyrirtækin hefðu gert endanlegan samning um samruna fyrirtækjanna. Þegar samruninn er genginn í gegn er áætlað að viðskipti með verðbréf sameinaða fyrirtækisins verði á NASDAQ undir tákninu „ALVO". Viðskiptablaðið greindi frá áformum félagsins á sínum tíma.

Mark Levick, forstjóri Alvotech:

„Þessi samstarfssamningur undirstrikar heildræna nálgun Alvotech á markað fyrir líftæknihliðstæðulyf. Sérhæfing Alvotech á sviði líftæknihliðstæðulyfja gefur okkur einstaka möguleika á að þróa lyf jafnt innan fyrirtækisins, gegnum leyfissamninga eða með samvinnu og samstarfi við framúrskarandi fyrirtæki á borð við BiosanaPharma."

Ard Tijsteerman, framkvæmdastjóri BiosanaPharma:

„Við fögnum samstarfi við Alvotech þar sem þróunar- og framleiðslugeta þess mun gera okkur kleift að bjóða okkar helstu vöru á alþjóðlegum markaði. 3C-vinnsluferlið okkar mun tryggja hagstæðara verð og bæta aðgengi sjúklinga, sem er sameiginlegt markmið BiosanaPharma og Alvotech."

Anil Okay, framkvæmdastjóri sölusviðs Alvotech:

„Samstarf fyrirtækjanna er gott dæmi um getu okkar til að auka hratt við vöruúrval okkar. Við höfum haft auga á þessu lyfi í nokkurn tíma og það er mikilvæg viðbót við lyfjaúrval okkar til meðferðar á ýmsum sjúkdómum."