Arnar Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimavalla, hefur selt allt hlutafé sitt í félaginu, samkvæmt tilkynningu Heimavalla til Kauphallarinnar í morgun . Söluverðið nemur um 37 milljónir króna.

Fyrr í morgun barst tilkynning frá Heimavöllum um að yfirtökutilboði norska félagsins Fredensborg AS hafi lokið í gær . Fredensborg mun eiga 99,45% af útistandandi hlutafé Heimavalla eftir uppgjör tilboðsins.

Erlendur Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður Heimavalla, hefur einnig selt allan hlut sinn í leigufélaginu fyrir 37,5 milljónir króna.