Hlutafé Þórsmerkur, móðurfélags Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, var aukið um 100 milljónir króna að nafnvirði í janúar síðastliðnum samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár.

Tap Þórsmerkur árin 2017 til 2020 nam samanlagt ríflega milljarði króna og var hlutafé félagsins aukið um nærri 800 milljónum króna á því tímabili til að mæta tapi af rekstrinum.