PLAY flutti 19.686 farþega í febrúar og sætanýting var 67,1%, samanborið við 55,7% í janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Mikill fjöldi kórónuveirusmita í lok síðasta árs hafði þau áhrif að PLAY þurfti að aðlaga flugáætlun sína í janúar og febrúar. Félagið hefur væntingar um að sætanýting aukist á næstu mánuðum, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Þessar væntingar grundvallast á tveimur meginatriðum.Annars vegar því að í febrúar hélt bókunum áfram að fjölga, eins og raunin hafði verið í janúar, og það þrátt fyrir váleg tíðindi í heimsmálunum. Hins vegar er fyrirséð að tengiflug yfir Atlantshaf, sem hefst í vor, muni styrkja stöðuna enn frekar.

Sex vélar inn í sumarið

Fyrsta Airbus A320neo flugvél PLAY kom til landsins þann 1. mars síðastliðinn. Floti PLAY hefur hingað til samanstaðið af þremur Airbus A321 flugvélum en þessi nýja A320neo flugvél verður sú fyrsta í röð þriggja flugvéla sem bætast við flotann í sumar. Hinar tvær eru væntanlegar til landsins í apríl og maí. Í sumar mun floti PLAY því samanstanda af sex flugvélum.

Sjá einnig: Play til Orlando í haust

PLAY hóf miðasölu til Orlando í Bandaríkjunum í lok febrúar. Fyrsta flug PLAY til Orlando verður þann 30. september og verður flogið þangað þrisvar í viku. Orlando er fjórði áfangastaður PLAY í Bandaríkjunum en hinir þrír eru Boston, Baltimore/Washington DC og New York.

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY:

„Nýr og spennandi kafli er að hefjast hjá PLAY og sætanýtingin heldur bara áfram að aukast. Við höfum verið með sterka bókunarstöðu að undanförnu og sjáum nú þegar mjög heilbrigt bókunarflæði inn í sumarið og fram á haust. Ég er fullviss um að við séum að stækka á hárréttum tímapunkti þar sem markaðurinn er greinilega að jafna sig eftir heimsfaraldurinn. Það eru mjög spennandi tímar fram undan. Við ætlum að ná markmiðum okkar og nýta í botn mikinn vöxt fluggeirans og ferðaþjónustu á næstu misserum."