Sex aðilar munu hefja byggingu á ódýrari íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur á næstu misserum ef áform og fjármögnun ganga eftir. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá borginni.

„Þessir aðilar munu byggja á lóðum sem hafa verið teknar frá fyrir hagkvæmar íbúðir. Borgarráð hefur nú samþykkt slík lóðarvilyrði á níu reitum og hafa þrír hópar skilað gögnum um fjármögnun og fengið fullgild lóðarvilyrði. Þetta eru Frambúð sem þróar byggð í Skerjafirði, Vaxtarhús sem vinnur að verkefni á reit Sjómannaskólans og Urðarsel í Úlfarsárdal. Því til viðbótar samþykkti borgarráð fimm vilyrði þar sem aðilum var gefinn átta vikna frestur til þess að tryggja fjármögnun eiginfjár sem nemur 20% af áætluðum byggingarkostnaði verkefnisins," segir í tilkynningunni

„Af þessum fimm hópum hafa nú tveir þegar skilað til borgarinnar gögnum um fjármögnun og teljast þeirra vilyrði því fullgild. Þetta eru Þorpið og Hoffell sem vinna að því að þróa hagkvæmt húsnæði í Gufunesi. Þá hefur borgarráð samþykkt að auglýsa breytingar á deiliskipulagi á tveimur reitum sem tengjast verkefninu; annars vegar á Sjómannaskólareit og hins vegar við Gufunes. Einn hópur er enn innan tímamarka með sitt vilyrði en það er Investis sem er að þróa byggð á Kjalarnesi. Enn á eftir að ráðstafa reitum í Bryggjuhverfinu til verkefnisins og verður gengið frá því á næstunni."

Í apríl 2018 samþykkti borgarráð að leggja fram lóðir á sjö stöðum fyrir verkefnið. Þetta voru ríkislóðir í Skerjafirði, við Sjómannaskólann og á Veðurstofuhæð. Auk þess lagði borgin fram þróunarlóðir við Gufunes, Ártúnshöfða, Grundarhverfi á Kjalarnesi og nýju hverfi í Úlfarsárdal.

Í maí árið 2018 var auglýst eftir samstarfsaðilum um uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði í Reykjavík á þessum lóðum. Auglýst var í fjölmiðlum og á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Ákveðið var að byggingarréttur yrði auglýstur á föstu verði sem er sama upphæð og umsækjendur um stofnframlög ríkisins hafa greitt eða 45.000 kr.