Bandaríska orkumálaráðuneytið hefur ákveðið að veita 2,2 milljónum dollara í nýsköpunarverkefni með það að markmiði að þróa áfram aðferðir til kolefnisförgunar með því að steinrenna koldíoxíð (CO2) í bergi í Tamarack í Minnesota-fylki í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Carbfix verður þar aðili að verkefnahópi sem samanstendur af fremstu sérfræðingum heims í rannsóknum tengdum niðurdælingu og steinrenningu CO2, en verkefnið er leitt af Rio Tinto. Auk Carbfix og Rio Tinto taka Pacific Northwest National Laboratory (PNNL), Columbia University og Advantek Sorpe Management Services þátt í verkefninu. Talon Metals, sem er meirihlutaeigandi og rekstraraðili Tamarack nikkelverkefnisins og samstarfsaðili Rio Tinto, leggur til þekkingu á málmgrýti og aðgang að landi fyrir vísindastarf á vettvangi. Verkefnið mun standa yfir í þrjú ár en auk stuðnings frá orkumálaráðuneytinu mun Rio Tinto leggja 4 milljónir dollara í fjármögnun verkefnisins.

Til þessa hefur kolefnisförgun með steinrenningu að mestu verið bundin við basaltberg, eins og við starfstöðvar Carbfix á Íslandi, en við Tamarack er annar berggrunnur sem vonast er til að hægt sé að nýta.

Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix:

„Í verkefnateyminu koma saman leiðandi sérfræðingar á þessu sviði, bæði úr heimi vísinda og iðnaðar, en ljóst er að alþjóðleg samvinna er lykillinn að því að hraða loftslagsaðgerðum. Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í föngun og förgun koldíoxíðs með hugverkavarinni aðferð sem getur gegnt lykilhlutverki í baráttunni gegn loftslagsvánni. Við erum spennt að taka þátt í þessu mikilvæga samstarfi og þróa tæknina okkar enn frekar þannig að hún nýtist við fjölbreyttari aðstæður en sýnt hefur verið fram á í dag."

Dr. Nigel Steward, yfir vísindarannsóknum hjá Rio Tinto:

„Markmið okkar er finna kolefnisförgunarlausnir sem geta hjálpað til við að ná loftslagsmarkmiðum með því að draga úr og vega upp á móti losun frá starfsemi okkar, sem og í öðrum iðngreinum, og að kanna ný viðskiptatækifæri sem kolefnisförgun getur skapað við starfstöðvar Rio Tinto um allan heim. Við munum vinna með leiðandi vísindafólki og frumkvöðlum til að kanna geymslumöguleika Tamarack-svæðisins og þróa lausnir sem hægt er að nota bæði þar og víðar."