Icelandair hefur á síðustu dögum dregið flugframboð saman um 30% vegna útbreiðslu COVID-19 og yfirgripsmikla ferðatakmarkanna sem hafa haft veruleg áhrif eftirspurn eftir flugi og eru auk þess að hafa neikvæð áhrif á bókunarstöðu félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Icelandair sendi til Kauphallarinnar fyrir skömmu.

Í tilkynningunni segir að líklegt sé að dregið verið enn frekar úr flugframboði á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi en að staðan geti breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgjast grannt með stöðu mála og hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í samráði við heilbrigðisyfirvöld til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks og farþega.

Þá segir einnig að óvissa ríki um háannatíma sumarsins en félagið gerir að öðru óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25% miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Félagið hyggst þó leggja áherslu á að viðhalda þeim sveigjanleika sem þarf til að geta brugðist hratt við eftir því hvernig eftirspurn þróast.

Þá eru fjárhagsleg áhrif vegna COVID-19 á starfsemi félagsins enn óviss. Í tilkynningunni segir að að kjóst sé að útbreiðsla veirunnar muni hafa neikvæð áhrif á sjóðsstreymi en unnið sé að því að lágmarka þau áhrif, m.a. með því að draga úr flugframboði auk þess sem unnið er að því með stéttarfélögum að lækka launakostnað verulega.