Tvær eyjur í karabíska hafinu, sem voru í einkaeigu Jeffrey Epstein, eru til sölu á 125 milljónir Bandaríkjadala, eða um 16 milljarða króna. Þetta kemur fram í grein hjá Wall Street Journal.
Eyjurnar eru hluti af Bandarísku Jómfrúareyjunum og kallast Great St. James og Little St. James. Eyjurnar ná yfir rúmlega 90 hektara svæði. Á minni eyjunni má meðal annars finna fjórar gestavillur, þyrlupall, tvær sundlaugar og þrjár strandir. Allur ágóði sölunnar mun nýtast í málskostnað fyrir bú Jeffrey Epstein, að því er kemur fram í grein WSJ.
Epstein keypti Little St. James á tæplega 8 milljónir dala árið 1998 og Great St. James á 22,5 milljónir dala árið 2016. Hann átti einnig fasteignir í París, Palm Beach og New Mexico.
Sjá einnig: Þriggja milljarða villa Epstein rifin
Söluferli á glæsivillu Epstein á Palm Beach lauk í lok árs 2020. Húsið var sett til sölu á tæplega 22 milljónir dala í júlí sama ár. Kaupandinn var fasteignajöfurinn Todd Michael Glaser, en hann sagðist hafa fengið húsið á afslætti. Hann stefndi á að kaupa villuna, rífa og byggja aðra svipað stóra í staðinn.
Esptein bjó á Bandarísku Jómfrúareyjunum í meira en tvo áratugi. Hann var handtekinn og ákærður fyrir mannsal í byrjun árs 2019 og ásakaður um að misnota stúlkur undir lögaldri á umtöluðum eyjum, en fannst látinn í fangaklefa stuttu síðar. Samkvæmt saksóknurum í dómsmáli Epstein er talið að villan í Palm Beach hafi leikið aðalhlutverk í kerfisbundnu barnaníði Epstein.