WOW air flutti 261 þúsund farþega til og frá landinu í júní eða um 56% fleiri farþega en í júní árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 86% í júní í ár sem er sambærilegt miðað við sama tíma í fyrra þrátt fyrir 54% aukningu á framboðnum sætakílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra.

Í fréttatilkynningu frá WOW segir að það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 1.2 milljón farþega en það er 124% aukning á sama tímabili frá árinu áður. WOW air flýgur nú til þrjátíu áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku.