Verð á hlutabréfum í Eik Fasteignafélagi hækkaði mest í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni eða um 2,72% í 191 milljóna króna viðskiptum.

Næst mest hækkun var á verði á hlutabréfum í Reginn en það hækkaði um 1,28% í 92 milljóna króna viðskiptum ef miðað er við lok dagsins í dag.

Hlutabréfaverð í Icelandair lækkaði mest í viðskiptum dagsins og nam lækkunin 1,31% í 339 milljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkun var á verði á hlutabréfum í VÍS og nam lækkunin 1,15%.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins lækkaði um 0,14% í Kauphöllinni í dag.