Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2017 var 62,8 milljarður á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum og lækkaði um 0,5% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Virði afurða búfjárræktar var 42,0 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 11,6 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru rúmir 16,7 milljarðar og þar af vörutengdir styrkir og skattar 604 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er 40,3 milljarðar árið 2017 og lækkaði um 0,8% frá fyrra ári.

Lækkun á framleiðsluvirði árið 2017 má rekja til 5,1% lækkun á verði á móti 4,9% magnaukningu. En breyting á notkun aðfanga má rekja til 1,9% magnaukningu og 2,7% lækkunar á verði.