Fyrirtæki eru að leita annað. Stórfyrirtæki sem vilja koma hingað og reisa stórt atvinnuhúsnæði upp á þúsundir fermetra, fá ekki svör hjá borginni af því að það eru ekki lóðir í boði. Við sjáum fyrirtæki eins og Icelandair sem er að flytja úr borginni. Þetta er allt röng þróun sem við þurfum að snúa við. Ef við horfum á þetta úr þrjátíu þúsund fetum þá vil ég að Reykjavík sé höfuðborg atvinnurekstrar á Íslandi. Það er hægt að snúa þessu við með því að laða fyrirtækin inn í borgina fremur en að ýta þeim út," segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, í Kaffikróknum, hlaðvarpsþætti Félags atvinnurekenda.

Sjá einnig: Hár skattur að fæla fyrirtæki úr borginni?

Einar segir að bjóða þurfi upp á atvinnulóðir í bland við íbúðabyggð. Þá þurfi að lækka fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði. Reykjavík innheimtir nú 1,6% af fasteignamati í skatt en Hafnarfjörður 1,4%. „Við getum verið einhvers staðar þarna á milli," segir hann. Hann gagnrýnir stjórnsýslu borgarinnar, sem hann segir að sé vel mönnuð en alltof seinvirk. „Ég vil ekki tala borgina niður en við verðum að horfast í augu við að sögurnar sem við heyrum af samskiptum fólks við stjórnsýsluna eru ótrúlegar," segir Einar og nefnir sem dæmi að símatími Heilbrigðiseftirlitsins sé hálftími á dag. Einar vill fá erlenda aðila til að gera úttekt á stjórnkerfi borgarinnar og bera saman við þær borgir sem best gera. Einar lýsir sig algerlega ósammála þeirri þróun að sveitarfélögin taki forystu í launakostnaðarhækkunum á vinnumarkaðnum, meðal annars með ríflegri vinnutímastyttingu en á almenna vinnumarkaðnum. „Ég held að flestir séu sammála um að atvinnulífið á að koma á undan. Við verðum að vita hver er raunveruleg geta efnahagskerfisins til að borga laun. Allt er þetta í samhengi, eitt stórt dýnamískt kerfi. Það gengur ekki að við séum að spenna væntingar umfram getu." Í samhengi við umræðuna um skipulagsmál segir Einar að hann upplifi það þannig að orðnar séu til tvær þjóðir í borginni. „Það eru þeir sem eru hluti af nýju Reykjavík sem þessi meirihluti hefur lagt áherslu á að byggja vestan Elliðaáa og svo eru það úthverfin. Við í Framsókn höfum í huga að úthverfin eru líka Reykjavík. Við erum ekki nógu ánægð og stolt að búa í Reykjavík. Það vantar betri stemningu í borgina."