Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði um 76 milljarða króna. Skuldabréfin bera 0,625% fasta vexti og voru gefin út til 6 ára á  ávöxtunarkröfunni 0,667%.

Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga að því er segir á vef stjórnarráðsins en en eftirspurnin nam um 3,4 milljörðum evra eða nærri sjöfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Citi, JP Morgan og Morgan Stanley.

„Þessi lántaka er staðfesting á greiðum aðgangi ríkissjóðs að fjármagni á alþjóðamörkuðum og sýnir tiltrú fjárfesta á þann viðnámsþrótt sem byggður hefur verið upp á síðustu árum. Hún eykur getu okkar til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs kórónuveiru og endurspeglar mikinn styrk og getu til að sigrast á efnahagslegum afleiðingum hans.“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.