Gengið hefur verið frá sölu á Keahótelum ehf. samkvæmt fréttatilkynningu frá Íslandsbanka sem hafði umsjón með söluferlinu. Kaupandi er fjárfestingafélagið K Acquisitions ehf. en að baki því félagi standa bandaríska fasteignafélagið JL Properties, með 25% hlut, bandaríska eignastýringarfyrirtækið Pt Capital Advisors með 50% hlut og íslenska fjárfestingarfélagið Tröllahvönn með 25% hlut.

Tröllahvönn var áður eigandi að 36% hlut í Keahótelum og er því um endurfjárfestingu að ræða að hluta. Nýir eigendur hyggjast reka fyrirtækið í óbreyttri mynd og verður Páll L. Sigurjónsson áfram framkvæmdastjóri Keahótela.

Seljendur eru Horn II slhf., Tröllahvönn ehf. og Selen ehf. Samkvæmt heimildum Vísis nemur heildarkaupverðið 5,5 milljörðum íslenskra króna. Aðilar undirrituðu kaupsamning fyrr í sumar og hafa nú öll skilyrði samningsins verið uppfyllt. Nýir eigendur tóku við félaginu í dag, þann 18. ágúst 2017.

„Við erum mjög ánægð að geta tilkynnt um kaup okkar á Keahótelum. Félagið á sér afar farsæla nær 20 ára sögu í ferðaþjónustu á Íslandi og er í dag þriðja stærsta hótelkeðja landsins. Hótel félagsins eru afar vel staðsett og félagið hefur getið sér gott orðspor fyrir góða þjónustu og vandaða hönnun hótela. Framundan eru spennandi tímar hjá félaginu þegar Exeter, nýtt 104 herbergja hótel, opnar við hafnarsvæðið í Reykjavík á næsta ári. Við teljum Keahótel í sterkri stöðu til að vaxa frekar og nýta þau tækifæri sem við sjáum til sóknar og samlegðar í íslenskri ferðaþjónustu,“ segir John Rubini, stjórnarformaður og forstjóri JL Properties.

“Ísland er frábært land til að fjárfesta og Pt Capital er spennt fyrir því að taka þátt í frekari uppbyggingu Keahótela í samstarfi við meðfjárfesta okkar frá Íslandi og Alaska. Íslenskur ferðaþjónustumarkaður hefur vaxið gríðarlega hratt undanfarin ár og við hlökkum til að vinna að því að viðhalda og styrkja gott orðspor Keahótela til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, starfsfólk og aðra haghafa.” segir Hugh Short, stjórnarformaður og forstjóri Pt Capital.