Gagnaversfyrirtækið Borealis Data Center og ítalska fyrirtækið Leaf Space hafa gert samning sem felst í hýsingu og rekstri á búnaði fyrir gervitunglafjarskipti.

Um er að ræða samskiptabúnað, loftnetastöð og annan tæknibúnað sem sinnir móttöku og meðhöndlun gagna frá gervitunglum á sporbraut um jörðu. Gervihnattastöðin er staðsett við gagnaver Borealis Data Center, sem hét áður Etix Everywhere Boralis, á Blönduósi þar sem allur búnaður er hýstur.

„Aðgengi að grænni orku og öruggum innviðum Borealis Data Center ásamt ákjósanlegri staðsetningu á Blönduósi gerir Leaf Space kleift að þjónusta stórt svæði og eiga í samskiptum við gervitungl á norðurslóðum með sjálfbærum og öruggum hætti,“ segir í fréttatilkynningutilkynningu.

Leaf Space sérhæfir sig í samskiptum við gervihnetti og þjónustar fyrirtæki sem þurfa aðgengi að gervihnöttum á sporbaug um jörðu.

„Staðsetning gervihnattarstöðvarinnar á Íslandi er mjög góð og leyfir okkur að ná yfir stórt svæði á norðurslóðum. Góðar nettengingar og aðgengi að gagnaversþjónustu Borealis er mikilvægur þáttur fyrir okkar heildarlausn. Ný stöð á Íslandi er stórt skref í að mæta þörfum viðskiptavina okkar hvað útbreiðslu varðar og sjálfbærni ásamt því að auka þjónustu okkar á heimsvísu“, sagði Jonata Puglia , forstjóri hjá Leaf Space.

Sjá einnig: Franskur sjóður kaupir Borealis

Lausn Leaf Space á Blönduósi er hönnuð með það í huga að þjónusta gervihnetti á norðurslóðum. Stöðin er hluti af neti Leaf Space og þéttir útbreiðslusvæðið á norðurhveli jarðar og lágmarkar biðtíma gagna frá gervihnöttum í náinni samvinnu við Borealis Data Center .

„Það er ánægjulegt að bæta við geimgagnavinnslu á Blönduósi og er uppbyggingin með Leaf Space staðfesting á þeim kostum og innviðum sem staðsetningin býður upp á. Borealis er nú komið í þá aðstöðu að þjónusta vaxandi umsvif í geimnum ásamt nýjum samstarfsfélögum hjá Leaf Space. Stuðningur frá heimamönnum og sveitafélaginu hefur skipt sköpun fyrir okkar uppbyggingu á svæðinu,“ segir Björn Brynjúlfsson , forstjóri Borealis Data Center

Borealis Data Center rekur tvö gagnaver hér á landi, á Blönduósi og Fitjum í Reykjanesbæ, með áherslu á sjálfbæra gagnaversþjónustu. Viðskiptavinir félagsins eru að mestu leyti erlend fyrirtæki sem leggja ríka áherslu á að lágmarka kolefnisfótspor af starfsemi sinni, að því er kemur fram í tilkynningunni.