Íslenska félagið Coripharma hóf í dag sölu á flogaveikilyfinu Eslicarbazepine sem er fyrsta samheitalyfið sem félagið þróar Þetta kemur fram í tilkynningu.
Coripharma selur lyfið í samstarfi við stórt evrópskt samheitalyfjafyrirtæki sem mun sjá um markaðssetningu lyfsins í Þýskalandi. Í framhaldinu mun Eslicarbazepine verða markaðssett víðar þar sem Coripharma hefur sótt um markaðsleyfi og tryggt samstarfssamninga fyrir lyfið í öllum helstu Evrópulöndum.
Vörusalan markar tímamót í rekstri félagsins þar sem Eslicarbazepine er fyrsta samheitalyfið sem þróað er af Coripharma. Fyrirtækið vinnur nú að lyfjaþróun og skráningu á 16 öðrum samheitalyfjum sem munu fara á markað á næstu árum.
„Okkar fyrsta afhending af samheitalyfinu Eslicarbazepine er gríðarlega mikilvægur áfangi fyrir Coripharma og er í takt við þann mikla metnað sem ríkir hjá starfsfólki félagsins. Verkefnið var krefjandi en það var einstaklega ánægjulegt að finna fyrir trausti erlendra samstarfsaðila og ekki síður að finna að áætlanir okkar um markaðshlutdeild í Evrópu eru að raungerast. Þessi áfangasigur mun gefa okkur byr undir báða vængi fyrir næstu verkefni félagsins," segir Jónína Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Coripharm, í tilkynningu.
Coripharma er íslenskt samheitalyfjafyrirtæki sem byggir á grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi, en félagið tók fyrir nokkrum árum yfir verksmiðju og þróunareiningu Actavis/Teva í Hafnarfirði. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Í dag starfa um 130 manns hjá Coripharma.