Framtakssjóðurinn Horn IV, sem er í stýringu hjá Landsbréfum, hefur gengið frá kaupum á 35% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu GoPro ehf. Með kaupunum verður Horn IV stærsti einstaki hluthafi félagsins. Um er að ræða fyrsta fjárfestingu Horn IV, samkvæmt tilkynningu á vef Landsbréfa.

GoPro samanstendur af tveimur íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum; Hugvit hf. og Canalix ehf. Bæði fyrirtækin þróa og selja hugbúnað fyrir mála- og skjalastjórnun, hvort á sínu sviði. Hugvit einbeitir sér að þróun skýjalausna fyrir millistór fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög, hérlendis og erlendis en Canalix að reglustýrðum ferlum fyrir stórar stofnanir, eingöngu fyrir erlendan markað. GoPro félögin eru með rúmlega 60 starfsmenn í 5 löndum og viðskiptavini í 8 löndum.

Velta GoPro nam 915 milljónum króna árið 2020 og félagið skilaði tæplega 120 milljóna króna hagnaði. Eignir félagsins námu um 1,2 milljörðum króna og eigið fé var 842 milljónir í árslok 2020.

Við kaup Horns IV voru annars vegar keyptir hlutir af núverandi hluthöfum og hins vegar var hlutafé GoPro hækkað og skrifaði framtakssjóðurinn sig fyrir allri þeirri hækkun. Stefnt er að nýta nýja fjármagnið við uppbyggingu, þar með talið uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs á alþjóðlegum mörkuðum og fyrir nýjar lausnir félagsins sem hafa verið í þróun undanfarin ár.

Viðskiptablaðið ræddi við Ólaf Daðason, framkvæmdastjóra og meðstofnanda GoPro, um Hugvit árið 2019 fyrir fylgiritið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Ólafur sagði félagið þá vera að uppskera eftir sjö ára og fjármagnsfreka þróun á nýrri kynslóð GoPro Foris mála-, skjala- og ferlastjórnunarkerfi.

Ólafur Daðason, framkvæmdastjóri og einn stofnanda GoPro:

„Kaup Horns IV á kjölfestuhlut í GoPro er afar ánægjuleg og mikilvæg félaginu. Með því fjármagni sem kemur inn í félagið mun því gefast kostur á að sækja fram og hraða uppbyggingu og umbreytingu félagsins og lausna þess fyrir skýið. Við höfum í gegnum árin leitast við að þróa lausnir í samstarfi við innlenda viðskiptavini og sækja fram með þær erlendis. Þetta er líkan sem gagnast ekki bara okkur heldur einnig okkar viðskiptavinum, auk þess sem það skapar verðmæti fyrir þjóðarbúið. Við munum nú m.a. horfa til aukinnar sóknar á erlendan markað með lausn fyrir dómstóla og tengda starfsemi sem við höfum undirbúið undanfarið.“

Horn IV er nýr framtakssjóður í rekstri Landsbréfa sem hóf starfsemi á síðasta ári. Sjóðurinn er 15 milljarðar króna að stærð en fjárfestingartímabil hans er til loka júlí árið 2025.

Hermann Már Þórisson og Steinar Helgason, framkvæmdastjórar Horns IV:

„Við erum mjög spenntir fyrir þessari nýju fjárfestingu. Félagið er mjög vel rekið með sterka stjórnendur og afburða starfsfólk. Reynsla starfsmanna ásamt einstaklega öguðum ferlum og vottunum mun nýtast í þeirri sókn sem fyrirtækið ætlar í á erlenda markaði. Við höfum trú á þeim vörum sem búið er að þróa innan fyrirtækisins og teljum þær eiga fullt erindi á erlenda markaði.“