Icelandair hefur kynnt nýjan áfangastað, Raleigh-Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Flogið verður fjórum sinnum í viku næsta sumar, frá 12. maí til 30. október.

„Icelandair mun bjóða tíðar ferðir til og frá Íslandi og öflugar tengingar áfram til áfangastaða félagsins í Evrópu, en frá Raleigh flugvelli eru ekki margar beinar tengingar við Evrópu í dag. Góðar tengingar eru frá Raleigh áfram til fjölda áfangastaða í Bandaríkjunum,“ segir í fréttatilkynningu.

Raleigh er höfuðborg Norður-Karólínufylkis á austurströnd Bandaríkjanna og þar búa um 10,5 milljónir. Icelandair bendir á að borgin hafi stækkað hratt undanfarin ár og þar hafa risið sterk fyrirtæki í tæknigeiranum og háskólar á heimsmælikvarða.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:

„Raleigh er spennandi viðbót við leiðakerfið okkar. Norður Karólína hefur upp á margt að bjóða og tengingar við borgina geta einnig komið sér vel fyrir háskólasamfélagið og viðskipti milli Íslands og Bandaríkjanna. Þá skapast góðar tengingar fyrir íbúa Norður-Karólínu við Ísland og áfram til áfangastaða Icelandair í Evrópu.

Undanfarin ár höfum við lagt áherslu á að bæta við nýjum áfangastöðum vestanhafs sem hafa litlar tengingar við Evrópu fyrir. Þannig getur félagið bætt mjög þjónustu frá þessum svæðum til Evrópu og nýtt þau tækifæri sem liggja í öflugu leiðakerfi okkar og stuttum tengitíma á Keflavíkurflugvelli.“