Icelandair hefur nú undirritað samninga við alla helstu hagaðila, þar á meðal alla kröfuhafa og Boeing, vegna kyrrsetningar MAX-vélanna. Félagið gerir ráð fyrir að birta fjárfestakynningu með ítarlegum upplýsingum fyrir fjárfesta og þátttakendur í fyrirhuguðu hlutafjárútboði og tímalínu á næstu dögum. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu félagsins.

Icelandair fellur frá kaupum á fjórum vélum og áætlun um afhendingu sex MAX-véla sem eru útistandandi hefur verið breytt. Gert er ráð fyrir að þær verði nú afhentar á tímabilinu frá öðrum ársfjórðungi 2021 fram til fyrsta ársfjórðungs 2022. Nánari efnisatriði samkomulagsins við Boeing er trúnaðarmál.

Þá felur samkomulagið í sér frekari bætur fyrir stóran hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrrsetningar MAX vélanna og verða þær greiddar út að mestu fyrir lok annars ársfjórðungs 2021.

Samningar við kröfuhafa taka mið af því að laga afborganir að væntu sjóðstreymi frá rekstri. Þeir eru háðir því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár og geri samning um lánalínu með ríkisábyrgð.

Viðræður við íslensk stjórnvöld um útfærslu á slíkri lánalínu, í samvinnu við Íslandsbanka og Landsbankann eru langt komnar. Eins og fram hefur komið verður lánafyrirgreiðsla stjórnvalda meðal annars háð því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Til viðbótar við langtímasamninga við flugstéttir, sem munu auka sveigjanleika og samkeppnishæfni Icelandair til lengri tíma, er samkomulagið við Boeing og samningar við lánadrottna mikill áfangasigur fyrir félagið. Allt eru þetta mikilvægir þættir í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sem nú er á lokastigi. Mikil vinna hefur átt sér stað á liðnum mánuðum við að endurskipuleggja rekstur Icelandair Group og búa félagið undir sókn á nýjan leik. Þar hafa starfsmenn félagsins unnið mikið þrekvirki. Þessi vinna mun án efa styrkja það fjárfestingartækifæri sem við munum bjóða í komandi hlutafjárútboði sem og rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar.“