Hlutafé Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) var lækkað um 2,5 milljarða króna að nafnvirði undir lok síðasta ár úr 3,8 milljörðum í 1,3 milljarða króna vegna taps fyrri ára.

Fyrirtækið tapaði 1,7 milljörðum króna árið 2020. Bókfært eigið fé félagsins nam 1,5 milljörðum króna í árslok 2020 eftir 2,2 milljarða króna hlutafjáraukningu á árinu.

ÍAV er í eigu svissneska verktakafyrirtækisins Marti.