Landsbankinn hefur innleitt nýja stefnu og verkferla við sölu eigna. Breytingin kemur í kjölfarið á gagnrýni sem bankinn hefur fengið vegna sölu hans á eignarhluta hans í kortafyrirtækinu Borgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Í tilkynningunni segir:

„Undirbúningur og ákvarðanir bankans um sölu á hlutum í Borgun höfðu það eina markmið að gæta hagsmuna bankans, eins og þeir voru metnir á þeim tíma í ljósi þeirra upplýsinga sem þá lágu fyrir. Engir annarlegir hvatar eða sjónarmið voru að baki ákvörðunar um að selja hlutinn á þann hátt sem gert var.“

Bankinn segir að á síðustu mánuðum þá hafi komið fram upplýsingar um að Borgun muni fá töluverð verðmæti í sinn hlut vegna yfirtöku Visa Inc. á Visa Europe. Bankinn hefur því samþykkt aðgerðaráætlun til að efla stjórnarhætti bankans við sölu eigna.

Helstu liðir áætlunarinnar eru:

  1. Markmið stefnunnar er að tryggja vandaða stjórnarhætti um sölu eigna og takmarka rekstraráhættu og orðsporsáhættu sem sala eigna getur falið í sér. Í nýju stefnunni er kveðið á um að meginreglan sé að söluferli sé opið. Frávik frá þeirri meginreglu verður að vera rökstutt, skráð og háð samþykki bankaráðs. Í stefnunni er skilgreint hvaða eignir teljast til mikilvægra eigna með tilliti til verðmætis og orðsporsáhættu. Sala mikilvægra eigna skal háð sérstöku mati á orðsporsáhættu og samþykki bankaráðs.
  2. Settar verða skráðar verklagsreglur um sölu allra helstu flokka eigna, sem byggja á nýrri stefnu bankans um sölu eigna. Slíkar verklagsreglur eru þegar til staðar um tiltekna eignaflokka og verða þær uppfærðar. Í verklagsreglunum verður að finna:
    a. Ákvæði um stjórnarhætti varðandi sölu eigna.
    b. Skilgreiningu á opnu söluferli fyrir hvern eignaflokk.
    c. Leiðbeiningar um mat á orðsporsáhættu.
    d. Kröfu um gagnsæi og að upplýsingar um eignir til sölu séu aðgengilegar.
    e. Leiðbeiningar um hvenær afla skuli verðmats og áreiðanleikakönnunar ytri aðila við sölu á mikilvægum eignum.
  3. Stefna og verklag tekur mið af áhættu og verður háð þriggja þrepa eftirliti, þar sem starfsmenn og stjórnendur, eftirlitseiningar og innri endurskoðun hafa hvert um sig tilteknu hlutverki að gegna.
  4. Árlega verður birt skýrsla á vef bankans þar sem veittar verða upplýsingar um eignir sem eru til sölu og eignir sem seldar hafa verið undanfarna 12 mánuði.
  5. Sett hefur verið sérstök stefna um orðsporsáhættu. Stefnunni er ætlað að auðvelda starfsmönnum bankans að meta orðsporsáhættu við sölu eigna. Stefnan skal endurspeglast í starfsemi bankans og vera hluti af áhættustjórnun hans. Í stefnunni eru sett viðmið um með hvaða hætti Landsbankinn leggur mat á orðsporsáhættu og hvernig unnið er að því að lágmarka orðsporsáhættu bankans og tjón sem af henni getur hlotist.

Landsbankinn áætlar að ljúka innleiðingu aðgerðanna fyrir 1. júlí 2016.

Fjármálaeftirlitið birti í dag niðurstöðu athugunar á söluferli Landsbankans á Borgun. Eftirlitið sagði að ferlinu hafði verið áfátt og að hún hafi ekki að öllu leyti samræmst eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum á fjármálamarkaði.