Rita Walters, farþegi með Wow air í gær, greinir frá því á Twitter síðu sinni að lögreglumenn hafi farið inn í flugvél flugfélagsins í Baltimore í Bandaríkjunum við lendingu, eftir að farþegar yfirgáfu vélina.
Leigusalar flugvéla Wow air kyrrsettu vélina í nótt vegna vanskila Wow air. Vélin sem lenti í Baltimore í gær var Airbus A321 undir nafninu TF-DTR og var leigð af Air Lease Corporation. Það félag leigði Wow air sjö af ellefu flugvélum félagsins.
Rita birti einnig mynd af Wow air vélinni TF-CAT í Keflavík eftir að hafa millilent þar.
Landed in Bmore last night from Paris on WOW and since I needed a wheel chair, I was one of the last to exit and thought it strange that police officers were entering plane and now wondered if the plane was seized. #wowair #prayingforticketholders #bwi pic.twitter.com/UMVMg9dYPO
— rita walters (@ritalwalters) March 28, 2019