Tekjur PLAY á árinu 2021 voru 16,4 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um 2,1 milljarði króna, en tap ársins nam 22,5 milljónum dala, sem jafngildir 2,9 milljörðum króna. Þetta kemur fram í uppgjörstilkynningu félagsins.

Tekjur hafi reynst lægri en vonast hafi verið til vegna neikvæðra áhrifa COVID-19 en kostnaður verið samkvæmt áætlunum. Fjárhagsleg afkoma félagsins á árinu hafi verið í samræmi við að félagið sé enn í uppbyggingarfasa. Ekki hafi verið gert ráð fyrir hagnaði á fyrsta ári þar sem starfsemin hófst ekki fyrr en á miðju ári.

Reiknar PLAY með rekstrarhagnaði á síðari hluta ársins 2022 þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi, eftir að tengiflugsleiðakerfið er tekið í gagnið. Bókanir hafi styrkst verulega með tilkomu þess. Engin áform séu því uppi um hlutafjáraukningu enda sé lausafjárstaða félagsins sterk, bókunarstaðan góð og fyrirtækið beri engar vaxtaberandi skuldir.

Bent er á að blikur séu á lofti í heimsmálunum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu en áhrifin á PLAY hafi fram til þessa takmarkast við hækkandi olíuverð því bókanir hafi haldið áfram að styrkjast. „Gert er ráð fyrir að hækkanir á olíuverði vegna innrásarinnar muni valda um tíu milljóna Bandaríkjadala kostnaðarauka á þessu ári. Því verður mætt með aukinni ráðdeild í kostnaði og tilkomu sérstaks olíugjalds ofan á miðaverð líkt og margir stærstu samkeppnisaðilar PLAY hafa innleitt,“ segir í tilkynningu PLAY.

Frá því að PLAY hóf starfsemi hefur félagið ekki haft virkar olíuvarnir enda hafi starfsemin verið sveigjanleg og sveiflur vegna COVID-19 miklar. Þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst hafi félagið verið í þann mund að innleiða og kynna stefnu í olíuvörnum, en fallið hafi verið frá því í ljósi breyttrar stöðu.

Þróun markaðsins í framhaldinu sé harla óljós á þessari stundu. Markaðir bregðist hratt við síbreytilegri stöðu og PLAY hyggst ekki taka upp olíuvarnir „fyrr en meiri fyrirsjáanleiki á markaði næst því annað telst of áhættusamt.“ Á móti sé stefnt á að lágmarka rekstrarkostnað á öllum sviðum til þess að mæta háu olíuverði og girða fyrir áhrif þess á rekstur félagsins eins og kostur er.

PLAY verður með sex flugvélar í rekstri í sumar og starfsmenn verða um 300 talsins en áfangastaðir verða tuttugu og sjö.

„Síðasta ár var mjög viðburðarríkt fyrir okkur hjá PLAY en við hófum loks flugrekstur, kláruðum velheppnaða skráningu á Nasdaq First North hlutabréfamarkaðinn og flugum með um 100 þúsund farþega á 6 mánuðum. Frábær árangur fyrir nýtt fyrirtæki í erfiðum markaðsaðstæðum en með þessu sannaðist að það er svo sannarlega tækifæri fyrir nýtt lággjaldaflugfélag á Íslandi. Árið var að sjálfsögðu litað af heimsfaraldrinum en með sveigjanleika okkar tókst að lágmarka áhrifin á reksturinn okkar og á sama tíma undirbúa næsta skref okkar sem er að byggja upp arðbært tengiflugskerfi á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Leynivopnið okkar í því verkefni er hinn magnaði hópur starfsfólks sem er að störfum hjá félaginu, hópur sem er lausnamiðaður, faglegur og alltaf með bros á vör. Með flugi til Bandaríkjanna hefst nýr og spennandi kafli í sögu PLAY og ég hlakka mikið til að takast á við þær áskoranir og vinna nýja sigra við hlið minna mögnuðu samstarfsmanna hjá PLAY,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra PLAY, í uppgjörstilkynningunni.