Flugfélagið Play hefur sett í loftið nýja bókunarvél sem er fyrsti áfangi í stafrænni vegferð félagsins. Þessi fyrsta útgáfa bókunarvélarinnar hefur að mörgu leyti svipaða virkni og fyrri bókunarvél en færir þróun og stjórn á viðmótinu yfir til flugfélagsins ásamt því að tæknilegur búnaður hefur verið bættur og notendaviðmót einfaldað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play.

Verkefnið var unnið í samstarfi við upplýsingatæknifyrirtækið AviLabs og vefhönnunarfyrirtækið Mito Digital.

Í tilkynningunni segir að stafrænt teymi PLAY vinni náið með mörgum ólíkum deildum flugfélagsins til að tryggja að nýja bókunarvélin mæti öllum þörfum og kröfum flókinnar alþjóðlegrar starfsemi.

„Þetta er þó aðeins byrjunin því næstu skref í stafrænni vegferð eru að endurhanna notendaaðgang og innritunarferli ásamt nýjum viðbótum s.s. tengiflugi, áningarflugi (e. stopover) og fleiri greiðslumöguleikum. Nýja bókunarvélin er áreiðanleg, öflug og leikglöð og veitir notendum trausta og þægilega upplifun við að skipuleggja ferðalög sín og eykur á sama tíma sölumöguleika flugfélagsins.“ segir í tilkynningu frá Play.