Á hluthafafundi í Vátryggingafélagi Íslands hf. var eitt mál á dagskrá, kosning til stjórnar félagsins. Frá þessu er greint í tilkynningu VÍS til kauphallarinnar.

Eftirfarandi einstaklingar voru kjörnir í stjórn félagsins:

Aðalstjórn

  • Gestur Breiðfjörð Gestsson
  • Marta Guðrún Blöndal
  • Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir
  • Valdimar Svavarsson
  • Vilhjálmur Egilsson

Varastjórn

  • Auður Jónsdóttir
  • Sveinn Friðrik Sveinsson

Ný stjórn hélt stjórnarfund eftir hluthafafundinn og skipti með sér verkum. Valdimar Svavarsson var kjörin formaður stjórnar og Vilhjálmur Egilsson varaformaður stjórnar.