Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa samið um 5,2 milljarða uppbyggingu skíðaaðstöðu á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins til ársins 2026. Markmið uppbyggingarinnar er sagt vera að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir alla hópa skíðaiðkenda í fréttatilkynningu.
Gert er ráð fyrir því að settar verði upp nýjar stólalyftur, Gosi og Drottning, í Bláfjöllum sem og snjóframleiðslu á skíðasvæðunum, nýrri toglyftu í Kerlingardal, lyftu í Eldborgargili og Skálafelli auk uppbyggingar á skíðagöngusvæði.
„Sérstakur verkefnahópur hefur verið starfræktur á vettvangi SSH til þess m.a. að undirbúa verkefnin og fylgja þeim eftir. Þá hefur verið ráðinn verkefnastjóri sem starfa mun með verkefnahópnum og stjórnendum skíðasvæðisins m.a. til að fylgja eftir samningum, hönnun og framkvæmd ásamt almennu utanumhaldi verkefnisins," segir í tilkynningunni.
Í fyrsta áfanga verkefnisins hefur verið samið við Doppelmayr skíðalyftur ehf., sem var lægstbjóðandi í samkeppnisútboði, um kaup og uppsetningu á skíðalyftunum Gosa, sem áætlað er að verði afhent á árinu 2022, og Drottningu, sem áætlað er að verði afhent á árinu 2023. Undirbúningsvinna vegna framkvæmdanna er þegar hafin. Í fyrsta áfanga er áætlaður kostnaður um 2,4 milljarðar króna. Skrifað var undir samkomulag þess efnis í dag af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Doppelmayr skíðalyftum ehf.