Óli Halldórsson, formaður byggðarráðs Norðurþings á líðandi kjörtímabili leiðir lista Vinstr-grænna og óháðra í Norðurþingi en flokkurinn hefur setið í meirihluta í sveitarfélaginu á yfirstandandi kjörtímabili. Norðurþing varð til með sameiningu Húsavíkur, Öxarfjarðar, Raufarhafnar, og Kelduneshrepps árið 2006. Þar búa nú um 2.800 manns.
Annað sæti listans skipar Kolbrún Ada Gunnarsdóttur kennari og deildarstjóri, Berglind Hauksdóttir leikskólakennari í þriðja sæti og Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur og sveitarstjórnarmaður í fjórða sæti. Guðmundur H. Halldórsson málarameistari skipar fimmta sætið og Röðull Reyr Kárason þjónustufulltrúi sjötta sætið.
Auk þess að konur skipi þrjú af fjórum efstu sætunum þá eru þær 11 talsins á móti 7 körlum á listanum í heild segir í fréttatilkynningu frá framboðinu. Með þessu vill V-listi Vinstri-grænna og óháðra sýna í verki að tími sé kominn til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnarmálum á Íslandi og draga fram þau áherslumál sem konum eru hugleikin í almannaþjónustu og forgangsröðun almennt.
Fjölskyldan og umhverfið eru megináherslumál V-listans í Norðurþingi árið 2018. Málefnaskrá listans verður kynnt á Húsavík laugardaginn 28. apríl í tilefni af heimsókn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
V- listi Vinstri græn og óháðir í Norðurþing fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 er eftirfarandi:
- 1. Óli Halldórsson, Forstöðumaður Húsavík
- 2. Kolbrún Ada Gunnarsdóttir Grunnskólakennari Húsavík
- 3. Berglind Hauksdóttir Leikskólakennari Húsavík
- 4. Sif Jóhannesdóttir Þjóðfræðingur Húsavík
- 5. Guðmundur H. Halldórsson Málarameistari Húsavík
- 6. Röðull Reyr Kárason Þjónustufulltrúi Húsavík
- 7. Nanna Steina Höskuldsdóttir Verkefnastjóri og bóndi Raufarhöfn
- 8. Stefán L. Rögnvaldsson Bóndi Öxarfirði
- 9. Aldey Traustadóttir Hjúkrunarfræðingur Húsavík
- 10. Guðrún Sædís Harðardóttir Grunnskólakennari Reykjahverfi
- 11. Selmdís Þráinsdóttir Ìþròtta-og heilsufræðingur Húsavík
- 12. Silja Rún Stefánsdóttir Bústjóri Öxafirði
- 13. Aðalbjörn Jóhannsson Verkamaður Reykjahverfi
- 14. Jóna Birna Óskarsdóttir Leikskólaleiðbeinandi Húsavík
- 15. Aðalsteinn Örn Snæþórsson Lífræðingur Kelduhverfi
- 16. Sólveig Mikaelsdóttir Sérkennsluráðgjafi Húsavík
- 17. Trausti Aðalsteinsson Afgreiðslustjóri Húsavík
- 18. Þórhildur Sigurðardóttir Kennari Húsavík